21.9.2008 | 20:35
Hvernig týpa ertu?
Það er alveg ótrúlegt hvað maður dæmir fólk eða heldur að fólk sé. Þú sérð einhvern gaur með pinna á milli augnanna og dæmir hann strax sem gaur ! Einhvern vandræða gemsa sem er sennilega með tattoo líka. En hann á nú 4 ára stelpu og er mjög hógvær og góður strákur.
Var svona að velta þessu fyrir mér þar sem ég er ein ný í 14 manna hóp í arkitektúr. Hvað ætli fólk haldi um mig? ein spurði mig, bíddu ertu ekki einkaþjálfari, kannast svo við þig ... eeee nei. Heyri það mjög oft að fólk kannist við mig, ég er sem sagt frekar venjuleg í útliti. En veit fólk að ég elska að hlusta á harðkjarna rokk, svona alvöru þungarokk. Mér finnst hrikalega gaman að keyra flotta bíla og þá hratt !! en samt er ég mjög bílhrædd með öðrum í hálku og svona. Veit fólk að ég á 1 árs strák og er utan af landi,,,, ehh sést langar leiðir enda algjört NERD
Ég ætla á tónleika næstu helgi með þessu bandi á Græna hattinum, efast að einhver vilji koma með mér en Aldís virtist nú alveg vera game
Fer suður á morgun og kem aftur norður á þrið. Stutt stopp og já ég tala mikið í áttum, landshlutum og spái mikið í veðrinu.
kv. Tinna Brá
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
brabra bloggar
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 400
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er eitthvað að frétta af Hannesi?
Dóra Lind (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 15:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.